Verkfall sjómanna á skipum Hafrannsóknastofnunarinnar hefur staðið síðan 28.september. Samningar hafa verið lausir síðan 2008. Tekist er á um sjómannaafsláttinn þar sem ríkið hefur ákveðið að afnema afsláttinn í áföngum á fjórum árum, mun helmingur skerðingar sjómannaafsláttarins verða kominn til framkvæmda um næstu áramót. Kröfur félagsins eru meðal annars um fullar bætur vegna skerðingarinnar og grunnlaunahækkun. Sjómenn sem starfa á skipum Íslenska ríkisins hafa dregist verulega aftur úr öðrum sjómönnum og er svo komið að þeir eru ekki hálfdrættingar á við aðra sjómenn sem vinna sambærileg störf.
Fundur félagsmanna í Sjómannafélagi Íslands sem starfa á skipum Hafrannsóknastofnunarinnar sem haldinn var 18.okt. hvatti samninganefnd félagsins til að hvika hvergi frá kröfum sínum.