02.02.2012

Ályktanir aðalfundar Sjómannafélags Íslands 2011


Aðalfundur Sjómannafélags íslands haldinn í Iðnó 29.desember 2011


Fundurinn fagnar komu varðskipsins Þór til Íslands, fundurinn lýsir hinsvegar áhyggjum sínum af fjársvelti Landhelgisgæslunnar og bendir á að ekkert varðskip var á tiltækt á Íslandsmiðum í fimm mánuði á því ári sem nú er að ljúka. Fundurinn gerir þá kröfu til stjórnvalda að Landhelgisgæslunni verði tryggt fjármagn til að sinna skildum sínum samkvæmt lögum um Landhelgisgæslu þ.e. björgunar og eftirlitsstörfum fyrir land og þjóð. Sjómenn geta ekki búið áfram við það öryggisleysi sem ríkt hefur á undanförnum misserum.

Fundurinn mótmælir þeim sköttum sem ríkisstjórnin hyggst setja á almennu lífeyrissjóðina, fyrirhugað er að lífeyrissjóðirnir greiði sérstakt gjald í ríkissjóð á árunum 2012 og 2013 sem nemur 0.0814% af hreinni eign til greiðslu lífeyris.Hjá lífeyrissjóðnum Gildi þar sem fjöldi sjómanna eru sjóðfélagar mun þessi skattur nema um 200 milljónum króna á þessu ári sem jafngildir 2.5% af lífeyrisgreiðslum ársins 2011 Vakin er athygli á því að þetta eykur á það óréttlæti sem er á milli sjóðfélaga í almennu lífeyrissjóðunum og í opinberu sjóðunum,þar sem skattlagning þessi mun aðeins hafa áhrif á réttindi opinberu sjóðanna. Yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um jöfnun lífeyrisréttinda er því marklaus.

Fundurinn gerir kröfu á stjórnvöld að fallið verði frá hugmyndum um svokallað pottakerfi við úthlutun aflaheimilda. Komi til aukninga á aflaheimildum renni aukningin til þeirra sjómanna sem hafa mátt þola. skerðingar aflaheimilda.Þannig að aflaheimildunum verði úthlutað til atvinnusjómanna án geðþáttákvarðana stjórnvalda.

Fundurinn krefur stjórnvöld um að hætt verði við afnám sjómannafsláttarins og lýti til nágrannalandanna eins og þeim er svo tafnt á hátíðis-og tyllidögum, þar sem sjómenn njóta sérstakra skatta í vilnuna langt umfram það sem tíðkast hefur á íslandi, þar sem sjómannsstarfið er metið að verðleikum af stjórnvöldum landanna. Með harðfylgni og ósérhlífni íslenskra sjómanna skapa sjómenn þann auð sem við öll lifum á, fundurinn skorar því á stjórnvöld að láta af árásum sínum á sjómenn og skila þeim réttindum sem þeir hafa haft s.l. 50 ár