Fréttatilkynning 6.maí 2011
Sjómannafélag Íslands hefur gert kjarasamning við útgerðamannafélag Færeyja v starfa á ferjunni Norrænu, sem siglir á alþjóðaskipaskrá Færeyja, þar sem engar kvaðir eru varðandi kjarasamninga áhafna. Um er að ræða skammtíma aðild útgerðamannafélags Færeyja að íslenskum farmannasamningi sem gerður er milli Samtaka atvinnulífsins og Sjómannafélags Íslands.1. maí 2008 og gilti til 30.nóv 2010 er því útrunninn. Samningurinn tekur þeim hækkunum sem verða á fyrrnefndum samningi við næstu undirritun.
Markmið félagsins með samningnum er að koma allt að 70 Íslendingum aðallega skólafólki í sumarvinnu.Engir Færeyingar missa vinnuna vegna þessa.Þessi störf voru unnin í fyrra af mestu leyti af fólki frá austur Evrópu.
Laun fyrir unnin mánuð eru að lágmarki 563.000 ísl kr fyrir utan lífeyrissjóðsgreiðslur og uppbótar v persónuafsláttar samanlagt 676.000 ískr
Sjómannafélag Íslands vísar ásökunum ASÍ til föðurhúsanna og bendir samtökunum að líta sér nær, til að mynda þá vinnu sem framkvæmd er í íslenskum höfnum af erlendu fólki á smánarlaunum án athugasemda ASÍ.
Vonandi eru textar nýundirritaðra samninga ASÍ hærri en launafólks í nágrannalöndunum.
Stjórn Sjómannafélags Íslands