18.05.2011

Yfirlýsing Sjómannafélags Íslands vegna auglýsinga ASÍ SSÍ og Afls í fjölmiðlum í dag


Í ljósi umræðu um launamun færeyskra og íslenskra starfsmanna sem starfa um borð Í Norrönu verður eftirfarandi að koma fram.

Samkomulag um kaup og kjör starfsmanna í sumarstörfum um borð í Norrönu var gert milli Reiðarafélags fyrir farmskip í Færeyjum og Sjómannafélags Íslands. Þessir samningar eru gildandi kjarasamningar farmanna á Íslandi, og framfylgir Smyril line þeim. Ferjan Norröna er skráð í FAS færeyska alþjóða skipaskrá og er því ekki færeyskur vinnustaður samkvæmt lögum um FAS.

Markmið samningsins er að skapa sumarstörf fyrir íslenskt skólafólk. Undanfarin sumur hafa þessi störf verið innt af hendi af Evrópubúum aðallega frá A- Evrópu. Í ár var ákveðið að bjóða íslensku skólafólki störfin á íslenskum kjörum.

Vel var staðið að ráðningu starfsmanna frá útgerðarinnar hálfu og þeim kynnt launakjör og aðstæður skv fyrrnefndum samningi og staðið rétt að málum við okkar fólk.

Fullyrðingar um 30% launamun eins og fullyrt er í fjölmiðlum eru rangar og sýnir afar óvönduð vinnubrögð ASÍ og Co.  Í samanburða útreikningi verður að taka  tillit til þess að samningar landanna eru afar ólíkir, td. hvað varðar laun á opinberum frídögum,lífeyrissjóðsmálum,persónuafslætti og fleiru.Lágmarkslaun fyrir unninn mánuð eru 564.000 ísl.kr samkvæmt samningnum. Fyrrnefnd félög hafa ekki haft fyrir því að kynna sér samninginn.

Sjómannafélag Íslands er um þessar mundir í kjaraviðræðum við útgerðamenn kaupskipa á íslandi, það er ánægjulegt að ASÍ, AFL og Sjómannasamband Ísland, sem er regnhlífasamtök hluta fiskimanna á Íslandi skuli hafa áhyggjur af bágum kjörum farmanna og sé samkvæmt yfirlýsingunni reiðubúið til átaka fyrir bættum kjörum íslenskra farmanna. Þessi samtök hafa fram að þessu ekki sýnt baráttu farmanna mikinn áhuga ,en batnandi mönnum er best að lifa.

Félagið er stolt yfir því að hafa með fyrrnefndum samningi haft áhrif á ráðningu fjölda íslenskra ungmenna til sumarstarfa í því ástandi sem ríkir á vinnumarkaði hér landi.

 

Stjórn Sjómannafélags Íslands