Landhelgisgæslan fari að lögum um tilgang og markmið
Samtök sjómanna hafa að undanförnu átt í samningaviðræðum við fulltrúa Landhelgisgæslunnar vegna áforma um að senda varðskip til óróasvæða í Miðjarðarhafinu. Fram hefur komið í fréttum að Landhelgisgæslan hafi fengið fyrirspurn frá Frontex, Landamærastofnun Evrópu, um að senda varðskip og flugvél til eftirlits vegna óróa í Líbíu og í öðrum löndum í N-Afríku. Samningar hafa ekki náðst enda hefur ríkisvaldið sýnt mikla óbilgirni í viðræðum við fulltrúa sjómanna. Sjómannafélag Íslands mun standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna ásamt öryggi og velferð. Þeirrar tilhneigingar hefur gætt að senda varðskip og flugvélar Landhelgisgæslunnar á fjarlægar slóðir og skilja landhelgina eftir óvarða og eftirlitslausa.
Síðastliðið sumar og fram á haust var varðskipið Ægir við eftirlitsstörf fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins. Skipið var við strendur Senegal en í júlí sigldi varðskipið til Almería á Spáni og var frá þeim tíma við eftirlit á Miðjarðarhafi. Georg Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar hefur upplýst að búið sé að gera samkomulag við Frontex um að senda skip og flugvélar til fjarlægra hafsvæða í sumar.
Nú stefnir í íslensk hafsvæði verði óvarin og eftirlitslaus í sumar þar sem bæði Ægir og Týr verði á fjarlægum hafsvæðum.
Gegn lögum tilgang og markmið Landhelgisgæslunnar
Þessi þróun er afar varhugaverð og gengur gegn lögum nr. 52/2006 um Landhelgisgæsluna en þar segir um tilgang og markmið í 3. grein:
„Starfssvæði Landhelgisgæslu Íslands er hafið umhverfis Ísland, þ.e. innsævið, landhelgin, efnahagslögsagan og landgrunnið, auk úthafsins samkvæmt reglum þjóðaréttar. Landhelgisgæsla Íslands sinnir einnig verkefnum á landi í samstarfi við lögreglu og önnur yfirvöld.“
Vert að hafa í huga að Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur haft uppi sterk orð um baráttu gegn glæpaklíkum sem skotið hafa rótum hér á landi. Hann hefur boðað framlagningu frumvarps á Alþingi um að veita lögreglu sérstakar rannsóknarheimildir vegna skipulegrar glæpastarfsemi. Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt viðbótarframlag til lögreglu upp á 47 milljónir til baráttu gegn glæpaklíkum.
Það skýtur skökku við að á sama tíma og boðuð er barátta gegn glæpaklíkum þá stefnir í að hafsvæði umhverfis Ísland verði óvarin og eftirlitslaus. Glæpaklíkur hafi þannig greiðan aðgang að landinu og geti óhindrað smyglað fíkniefnum í skipum og skútum.
Hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gjörir.
Sjómannafélag Íslands varar við þessari þróun og áréttar að ótækt sé að stofnanir sem eiga að gæta laga og réttar gangi undan með slæmu fordæmi og fari gegn settum lögum um tilgang og markmið.