29.04.2011

Miðar í Edduhótel fyrir sumarið 2011


Sjómannafélag Íslands býður félagsmönnum til sölu miða á Edduhótelunum á 4000 kr. stk. Félagsmaður tekur fengið að hámarki 7 miða. Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt.  Ekki er innifalin morgunverður.

 

Leyfilegt er að taka með sér 1-2 börn í herbergi án þess að greiða aukalega ef fólk hefur svefnpoka eða rúmföt.  Við útvegum dýnu.

 

Greiðslumiðana má nota á öllum Edduhótelunum sem eru 13 hringinn í kring um landið. Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu. Hótelin bjóða gistingu ýmist í herbergjum með handlaug eða með baði og sum hvorutveggja.  Á Edduhótelunum er boðið upp á fjölbreyttar veitingar.

 

Sé gist í herbergi m/baði greiðist aukagjald kr. 6.800- á herbergi. 

Sé gist í herbergi m/baði á Hótel Eddu Plus* greiðist aukagjald kr. 9.800,-.

 

Hótel Edda Plus eru Hótel Edda, Akureyri, Stórutjörnum, Laugum í Sælingsdal og Vík. Þar eru herbergi með baði, sjónvarpi og síma.   

 

Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar.

Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.

 

Verðlistaverð Edduhótelanna sumarið 2011 er:

Tveggja manna herbergi m/handlaug              kr.   11.400,-.

Tveggja manna herbergi m/baði                     kr.   18.200,-. 

Hótel Edda Plus                                              kr.   21.200,-.

Morgunverður                                                  kr.    1.400,- á mann.

 

Allar frekari upplýsingar veittar í síma 444 4000 og edda@hoteledda.is

Upplýsingar um hótelin má einnig fá á heimasíðu okkar http://www.hoteledda.is