Þann 20. janúar næstkomandi rennur út útboðsfrestur vegna álflutninga á sjó fyrir Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Sjálfsagt bjóða útlensk og íslensk skipafélög í flutninga fyrir álverið í Straumsvík. Í tæp 40 ár sáu íslenskir sjómenn um flutninga til Evrópu fyrir álverið. Það gekk afar vel en í þenslunni á útmánuðum 2008 ákvað álverið að söðla um að skipta við norska skipafélagið Wilson Euro Carriers en skip þess sigla undir hentifána með rússneskar áhafnir á smánarlaunum. Skömmu síðar hrundu íslensku bankarnir og atvinnuleysi knúði dyra hjá íslensku alþýðufólki. Mjög hefur hert að íslenskum farmönnum. Nú eru hátt í fimmtán þúsund manns án vinnu og liðlega tíu þúsund og sex hundruð manns fluttu úr landi árið 2009 en tölur fyrir 2010 liggja enn ekki fyrir. Daglega flýja nokkrar fjölskyldur land.
Það er hart í ári hjá íslenskri alþýðu.
Sjómannafélag Íslands, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna krefjast þess að Rio Tinto Alcan í Straumsvík semji við skipafélag sem tryggir íslenskum sjómönnum vinnu. Ef Rio Tinto Alcan beinir viðskiptum sínum til skipafélags með íslenska sjómenn í áhöfn tryggir það 32 sjómönnum pláss og á annað hundrað manns fyrirvinnu. Það munar um minna.
Rio Tinto Alcan sýni vilja í verki
Sjómannafélag Íslands, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna vekja athygli á nýlegum ummælum Rannveigar Rist, forstjóra Rio Tinto Alcan í Viðskiptablaðinu: „Það er líka sterkur vilji ... að aðstoða Ísland við uppbygginguna.“
Við hvetjum forstjórann til þess að standa við orð sín.
Félögin vekja athygli á siðareglum Rio Tinto Alcan og sérstaklega eftirfarandi grein: „Við vinnum náið með þeim samfélögum sem við störfum í, virðum lög þeirra og venjur og tryggjum þeim sanngjarna hlutdeild í ávinningi og tækifærum.“
Félögin vekja athygli á að Rio Tinto Alcan er aðili að Eþikos; íslenskri fræðslu og rannsóknarmiðstöð um samfélgslega ábyrgð fyrirtækja innan Global Compat sem er vettvangur innan Sameinuðu þjóðanna með þátttöku yfir fjögur þúsund fyrirtækja um allan heim.
Þegar álverið hóf starfsemi fyrir rúmum fjörtíu árum kreppti að íslenskum sjómönnum þegar síldin hvarf. Þá fengu margir sjómenn vinnu í Straumsvík. Það hafa alltaf verið sterk tengsl milli álversins og sjómanna. Það er tímabært að styrkja tengslin.