07.01.2011

Íslenskir sjómannasamningar gildi í skipum frá Straumsvík


Það er rangt sem fullyrt er á heimasíðu álversins í Straumsvík www.isal.is að kjör rússneskra og íslenskra háseta séu sambærileg. Það er mikill munur á kjörum íslenskra og rússneskra sjómanna. Rússneskir hásetar norska skipafélagsins Wilson Euro Carriers hafa um það bil 36% af launum háseta á íslenskum kjarasamningum. Raunar er munurinn meiri ef íslensk kjör væru virkjuð um borð í Wilson-skipi með rússneskri áhöfn og stórhátíðaálag, tryggingar og fleira tekið inn í myndina. 

 

Sjómannafélag Íslands, Félag skipstjórnarmanna og Félag vélstjóra og málmtæknimanna fagna útaf fyrir sig vilja álversins um að íslenskir sjómenn annist um álflutninga til Evrópu. En félögin vilja efndir, ekki innantóm orð. Félögin krefjast þess að álverið fylgi eftir orðum sínum og siðareglum um að sýna samfélagslega ábyrgð. Fremur en að álverið fagni því „...ef félag sem notaði íslenskar áhafnir yrði hlutskarpast í því útboði sem nú stendur yfir...“ er þess krafist að álverið geri það að skilyrði að íslenskir kjarasamningar gildi um borð í skipum á vegum Rio Tinto Alcan frá Straumsvík til Evrópu.

 

Félögin eru þess fullviss að ekki kæmi til greina að vísa íslenskum verkamönnum á dyr í Straumsvík fyrir verkafólki á rússneskum kjarasamningum. Álverinu er í lófa lagið að krefjast þess að íslenskir sjómannasamningar gildi í skipum sem flytja álmelmi úr landi. Með því léti álverið í Straumsvík verkin tala og stæði með íslenskum sjómönnum – íslenskri alþýðu.