Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Arion-banka til að greiða Sjómannafélagi Íslands tæpar sex milljónir króna auk vaxta og dráttarvaxta ásamt 800 þúsund króna málskostnaðar vegna ofgreiðslu á ólögmætu gengistryggðu fasteignaláni sem tekið var til kaupa á orlofsíbúð. Arion-banki þarf að greiða félaginu frá þeim degi sem hann tók við kröfunni frá Kaupþingi, sem var í janúar 2010.
Málsatvik eru þau að Orlofssjóður Sjómannafélags Íslands tók 15 milljón króna lán til 20 ára hjá Kaupþingi árið 2007. Lánið var greitt upp á þremur árum og námu þá greiðslur um 37 milljónum króna. Um var að ræða svonefnt „erlent myntkörfulán”, gengistryggt í fjórum erlendum myntum en lánsfjárhæðin var í íslenskum krónum. Hæstiréttur hefur dæmt slíka gengistryggingu ólögmæta og því taldi Sjómannafélagið sig hafa ofgreitt bankanum tæplega 19,9 milljónir króna auk vaxta og málskostnaðar. Héraðsdómur dæmdi gengislánið ólögmætt, en miðaði við þann tíma sem lánið var í vörslu Arion-banka. Í dómi Héraðsdóms segir m.a.:
„Að atvikum virtum verður að telja að í reynd hafi verið lánað fé í íslenskum krónum, en að viðskiptin hafi verið færð í þann búning að þau færu fram í erlendum gjaldmiðlum. Með þessu er lánsféð verðtryggt miðað við gengi erlendra gjaldmiðla, sem er óheimilt samkvæmt 14. gr. vaxtalaga ... Verður því að fallast á það með stefnanda að verðtrygging skuldabréfs hans hafi verið ólögmæt og óskuldbindandi. Skiptir engu í því sambandi þó talið yrði að stefnandi hafi sjálfur valið þessi samningskjör.”
Niðurstaðan er enn einn sigurinn fyrir fólkið í landinu og brýnt að sjómenn skoði réttarstöðu sína í samræmi við þennan dóm. Sérstaka athygli vekur þó að dómurinn nær aðeins til janúar 2010 eða þann tíma sem lánið hefur verið í vörslu Arion-banka en gamla Kaupþing eða öllu heldur slitastjórn hennar sleppur. Sjómannafélagið hlýtur að skoða réttarstöðu sína í því ljós. Arion-banki hefur boðað áfrýjun málsins til Hæstaréttar. Jón Finnbjörnsson kvað upp dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur 18. febrúar síðastliðinn.