|
05.11.2010
Kosning til stjórnlagaþings Stjórnvöld hafa ákveðið að kosning til stjórnlagaþings standi í 16 daga þ.e. 10. – 26. Nóvember kl 12. Félagið hefur gert athugasemdir við fyrirkomulagið við Dómsmálaráðuneytið , þar sem stærstur hluti sjómanna er ekki í landi kosningadagana. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki orðið við erindi félagsins um að haga kosningunni þannig að sjómenn geti nýtt kosningarétt sinn séu þeir ekki í landi fyrrnefnd daga. Sjómenn eru því svipir atkvæðarétti sínum vegna kosninga til stjórnlagaþings í stórum stíl.
|