Stjórn Sjómannafélags Íslands lýsir þungum áhyggjum af stöðu Lífeyrissjóðsins Gildis, þar sem tapast hafa gríðarlegir fjármunir. Tapið veldur því að réttindi sjóðsfélaga hafa verið skert nú í annað sinn á tveggja ára tímabili.
Ekki sér fyrir endann á tap sjóðsins þar sem óvissa er um niðurstöður margra mála er varðar fjámuni sjóðsins. Framkvæmdastjóri og stjórn sjóðsins virðist ætla að axla ábyrgð á hörmungum sjóðsins með því að sitja sem fastast.
Fram til þessa dags hafa flestir félagsmenn Sjómannafélags Íslands verið með skildu aðild að Lífeyrissjóðnum Gildi áður Lífeyrissjóður Sjómanna. Í ljósi aðstæðna telur félagið rétt að skildu aðild að ákveðnum sjóðum verði aflétt.
Félagið mun vinna að því að félagsmenn þess hafi frelsi til að velja sér lífeyrissjóð.
Stjórn Sjómannafélags Íslands krefst þess að framkvæmdastjórinn ásamt stjórn axli ábyrgð og segi af sér nú þegar.