30.12.2009

Ályktanir frá aðalfundi Sjómannafélags Íslands


Aðalfundur Sjómannafélags Íslands haldinn 29. Desember 2009

 

Fundurinn mótmælir nýjum lögum um afnám sjómannafsláttarins. Fundurinn bendir á að sjómenn hafa notið sérstakra skatta kjara í yfir 50 ár, þó mun lægri en í nágrannalöndunum.

Á sama tíma og ríkisstjórn Íslands ræðst á kjör sjómanna með afnámi sjómannaafsláttarins hafa sjómenn að auki tekið á sig skerðingar í lífeyrissjóðum sínum .

Samtímis tryggir ríkisvaldið sjóðfélögum lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins full réttindi án nokkurra skerðinga .

Sjómenn munu ekki láta þessar aðgerðir yfir sig ganga.

Fundurinn skorar á sjómannastéttina og samtök útgerðarmanna að standa saman um að brjóta lögin um afnam sjómannafsláttarins á bak aftur.

 

Fundurinn lýsir stuðningi við að hvalveiðar séu hafnar að nýju. Við veiðarnar skapast fjöldi vellaunaðra starfa til sjós og lands. Veiðarnar eru vonandi komnar til að vera.

Vonandi hafa stjórnmálamennirnir kjark og þor til að svo megi vera , þrátt fyrir ótrúverðugan málflutning öfgasamtaka .

 

Fundurinn lýsir miklum áhyggjum af stöðu Landhelgisgæslunnar.  Varðskip Landhelgisgæslunnar eru 2 og hafa aldrei verið færri . Lengi vel voru þau 4, á þeim tímum var þess gætt að varðskip væri ávalt tiltækt  við hvern landsfjórðung  til öryggis fyrir sjófarendur og landsmenn alla.

Nú eru aðrir tímar þrátt fyrir að skipin séu aðeins tvö liggja þau bæði langtímum saman  við bryggju í Reykjavík í skugga nýbyggingar tónlistarhússins.

 Fundurinn telur að ekki sé rétt forgangsraðað  þegar  mannslíf eru í húfi. Fjármunum er dælt í gæluverkefni  á meðan öryggistæki  Landhelgisgæslunnar eru ekki tiltæk vegna fjársveltis .

Sjómenn krefjast úrbóta.