27.11.2009

Ályktun stjórnar Sjómannfélags Íslands um afnám sjómannaafsláttar


Stjórn Sjómannafélags Íslands mótmælir áformum um afnám sjómannaafsláttar .

Stjórn félagsins bendir á að  allar alhæfingar um góðæri sjómanna fá vart staðist.

Sjómenn hafa verið að taka á sig tekjurýrnun vegna aflabrests á loðnuveiðum og sýkingar í síldarstofninum einnig hefur  sjávarútvegs ráðherra stórskert veiðiheimildir fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, sem leiðir til verulegrar tekjuskerðingar sjómanna.

Farmenn, varðskipsmenn , ferjumenn og sjómenn á skipum Hafrannsóknarstofnunar verða seint taldir til hátekjumanna.

Vegna þeirra sem horfa öfundaraugum til launa sjómanna skal bent á fjarveru sjómanna og þær byrðar sem settar eru á eiginkonur og fjölskyldur þeirra, þá eiga sjómannskonur  erfiðara með að stunda störf utan heimilis vegna  fjarveru manna sinna.

Þó má fagna  yfirlýsingu úr greinagerð með frumvarpinu um að afskipum stjórnvalda af kjörum einstakra starfstétta heyri nú sögunni til.

Sjómannafélag  Íslands mun hvetja sjómenn til að sigla í land verði að afnámi sjómannaafsláttar.