20.03.2003

STYRKIR VEGNA NÁMS EÐA NÁMSSKEIÐA


Úthlutunarreglur:

Einstaklingsstyrkir til náms/námskeiðs:
1.    Félagsmaður, sem unnið hefur fullt starf í a.m.k. sex mánuði sl. 12 mánuði skv. kjarasamningi SA/LÍÚ við SÍ, og greitt til SÍ á þeim tíma á rétt á stuðningi til náms.
2.    Við greiðslu náms/námskeiðs skal skila reikningi/kvittun frá viðkomandi fræðslustofnun til skrifstofu Sjómannafélags Íslands.
3.    Að fullnægðum ofangreindum skilyrðum kemur til greiðslu á styrk til viðkomandi.
4.    Foreldrar í fæðingar- eða foreldraorlofi geta nýtt sér áunnin rétt skv. 1. gr. ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld á meðan á orlofi stendur.
5.    Félagsmenn í atvinnuleit halda áunnum rétti sínum eins og hann var við starfslok ef þeir velja að greiða stéttarfélagsgjöld af atvinnuleysisbótum.
6.    Sá sem hverfur frá vinnu vegna aldurs og greitt hefur til félagsins síðustu 5 ár heldur rétti sínum til styrks næstu 5 ár eftir starfslok.


Upphæð styrks:
Greitt er að hámarki 60.000.- kr.í styrk á ári fyrir hvern félagsmann í almenna styrki, 100.000 krónur í meiraprófsstyrk.Hver einstaklingur getur einungis fengið slíkan styrk einu sinni. Ekki skiptir máli hvort allir fjórir þættir aukinna ökuréttinda séu teknir. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskeiðskostnaði.
Frístunda/tómstundanámskeið
Sjómennt veitir styrki vegna tómstundanámskeiða ýmis konar og er endurgreiðsla vegna þeirra 50% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 18.000.- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.
Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar-og ritstuðning
Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 60.000.-
 

Upphæð styrks:
Greitt er að hámarki 60.000.- kr.í styrk á ári fyrir hvern félagsmann í almenna styrki, 100.000 krónur í meiraprófsstyrk.Hver einstaklingur getur einungis fengið slíkan styrk einu sinni. Ekki skiptir máli hvort allir fjórir þættir aukinna ökuréttinda séu teknir. Aldrei er þó greitt meira en sem nemur 75% af námskeiðskostnaði.
 
Frístunda/tómstundanámskeið
Sjómennt veitir styrki vegna tómstundanámskeiða ýmiskonar og er endurgreiðsla vegna þeirra 50% af kostnaði en aldrei hærri en kr. 15.000.- á ári og dregst jafnframt af heildarupphæð einstaklingsstyrks þess árs.)

Styrkir til kaupa á hjálpartækjum fyrir lestrar-og ritstuðning
Félagsmenn sem eru lesblindir eða eiga við lestrar-og ritörðugleika að stríða geta sótt um allt að 75% styrk vegna kaupa á hjálpartækjum ætluðum til stuðnings við lestur og skrift. Heildarstyrkur miðast við hámarksupphæð skv. almennum reglum sjóðsins eða kr. 50.000.-
 

Til almennra styrkja teljast.

• Nám og námskeið í vélstjórn og skipstjórn ( t.d. 30 tonna réttindi, vélagæslunámskeið )

  • Netagerðarnámskeið
• Starfsmennt, sérhæft nám og námskeið frá viðurkenndum fagskólum ( t.d. Fjöltækniskólanum,   Iðnskólanum, Rafiðnaðarskólanum, Fræðslustöðvum iðnaðarins )
• Almenn nám sem ekki telst tómstundarnám við öldungadeildir, framhaldsskóla, fjölbrautarskóla,            iðnskóla, námsflokka, kvöldskóla, símenntunarmiðstöðvar
  • Fyrsta önn í námi við framhaldsskóla og háskóla
  • Einingarbært nám og það nám er tengist starfi viðkomandi
  • Tölvunám
  • Tungumálanám
  • Lesblindugreining og námskeið vegna lesblindu og lestrarörðuleika
  • Aukin ökuréttindi og vinnuvélanámskeið
  • Sjálfstyrkinganámskeið frá viðurkenndum kennsluaðilum
  • Matsveinanámskeið

Hægt er að fylla út eiðublöð rafrænt eða prenta út og senda á SJÓMANNAFÉLAG ÍSLANDS SKIPHOLTI 50D 105 REYKJAVÍK  www.sjomenn.is

Með umsókninni þarf að fylgja frumrit kvittana og staðfesting um námslok ( einkunnir eða skirteini )