ATH. ORLOFSHÚS OG ÍBÚÐIR FÉLAGSINS ER ENGÖNGU ÆTLAÐ FÉLAGSMÖNNUM. LEIGUTAKA ER ÓHEIMILT AÐ LÁNA EÐA FRAMLEIGJA TIL ANNARA. BROT Á REGLUGERÐ ÞESSARI LEIÐIR AF SÉR RÉTTINDAMISSI VIÐ LEIGU Á ORLOFSHÚSUM OG ÍBÚÐUM FÉLAGSINS. Hraunborgir 15 Grímsnesi. Bústaðurinn er A bústaður á tveimur hæðum og er grunnflötur hússins 40,9 fm. Á neðri hæð er opið rými með eldhúsi, borðstofu og stofu, herbergi með tvöföldu rúmi, rúmgóðu baðherbergi með sturtu. Útgangur frá stofu á afgyrtan sólpall með heitum potti. Frá gangi er stigi upp á aðra hæð, komið er upp í herbergi með fjórum rúmum, en innaf því er herbergi með tvöföldu rúmi. Í bústaðnum er eftirtalið. Gasgrill, eldavél með bakarofni, örbeljuofn, útvarp með CD, sjónvarp, borðbúnaður fyrir 12 pers., ískápur með litlum frysti, sængur og koddar. Það sem fólk verður að koma með sjálft er eftirfarandi. Sængurföt, handklæði, viskustiki og borðtuskur. Á sumrin er opin er félagsmiðstöð með sundlaug, heitum pottum, gufu, billjard, minygolf, verslun með smávörur, níu holu golfvöllur, leiktæki fyrir börn, stæði fyrir tjaldvagna og húsbíla. Stutt er í stærri golfvelli. Leiguverð: 16.000 kr. vikan á sumrin og 10.000 kr. helgarleiga á veturnar. Ath. Bústaðirnir eru greiddir við pöntun og pantnanir á orlofhúsum félagsins eru i síma 551 1915. Greiða á inn á reikning 0319-26-405 kt. 570269-1359 og senda kvittun á sjomenn@sjomenn.is og setja í skýringu kennitölu leigutaka ATH! Leigutímabil er vika í senn - Hefst á föstudegi og endar á föstudegi. |