Orlofssjóður


Reglugerð fyrir Orlofssjóð Sjómannafélags Íslands.

1. grein. Nafn sjóðsins og heimili.

Sjóðurinn heitir Orlofssjóður Sjómannafélags Íslands, skammstafað Orlofssjóður SÍ.
Orlofssjóðurinn er eign Sjómannafélags Íslands.
Heimili hans, varnarþing  og afgreiðsla er á skrifstofu Sjómannafélags Íslands.


2. grein. Hlutverk og tilgangur.

Hlutverk sjóðsins er bygging og rekstur orlofshúsa, orlofsíbúða, leiga á húsum eða íbúðum frá öðrum félögum eða einkaaðilum og þátttaka í orlofs og sumardvalarsvæðum, innanlands sem utan. Einnig þátttaka í kostnaði af orlofsferðum félagsmanna sem farnar eru að frumkvæði eða tilhlutan SÍ.
Tilgangur sjóðsins er að auðvelda félögum að njóta  orlofs og hvíldar.


3. grein. Tekjur sjóðsins eru:

a.  Samningsbundin gjöld atvinnurekenda.
b.  Tekjur af leigu orlofshúsa og  aðrar leigutekjur.
c.  Vaxtatekjur.

4. grein. Stjórn og rekstur sjóðsins.


Stjórn Sjómannafélags Íslands fer með stjórn sjóðsins og ber ábyrgð á fjárreiðum sjóðsins.
Allir samningar varðandi kaup eða sölu, leigu  á húsum og íbúðum, svo og byggingaframkvæmdir, skulu samþykktar af stjórninni.
Stjórn sjóðsins sér um rekstur, viðhald, ákveður leigugjald og setur úthlutunarreglur.
Stjórn sjóðsins færir reglugerð sjóðsins í fundargerðarbók stjórnar og þar skal geta afgreiðslu mála Orlofssjóðs.


5. grein. Reikningsár og endurskoðun.

Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Skrifstofa SÍ annast innheimtu og reikningshald fyrir sjóðinn. Allur beinn kostnaður varðandi rekstur sjóðsins skal greiddur úr honum sjálfum.
Reikningar sjóðsins skulu liggja frammi áritaðir á skrifstofu SÍ sjö dögum fyrir aðalfund SÍ.
Löggiltir endurskoðendur og félagslegir skoðunarmenn skulu vera þeir sömu og hjá félagssjóði SÍ, kosnir samkvæmt lögum SÍ.


6.grein.

Lög þessi öðlast gildi þegar í stað.  Jafnframt falla úr gildi lög frá . 29. des. 2005
Lögin eru þannig samþykkt á aðalfundi SÍ  11. janúar 2007.

 

Orlofsjóður endurgreiðir félagsmönnum sem hafa hlotið full réttindi í félagið allt að 15.000 kr. vegna leigu á fellihýsi, tjaldvagni og leigu á tjaldstæði. Einnig vegna veiði- og útilegukorts. Gegn framvísun löglegrar kvittunar leigusala.