Félagsgjald og réttindi

Til að greiða í félagið og öðlast réttindi í Sjómannfélagi Íslands dugar að hringja á skrifstofu félagsins og gefa upp nafn, kennitölu og útgerð sem starfað er hjá. Einnig getur viðkomandi hringt sjálfur í launafulltrúa sinnar útgerðar og óskað eftir að greiða til Sjómannafélags Íslands.

ATH. Þeir sjómenn sem hafa öðlast full réttindi i styrktar- og sjúkrasjóðum í  öðru félagi, koma á fullum réttindum í félagið

Félagsgjald í Sjómannafélagi Íslands er almennt 1% af launum nema af fiskimönnum á skipum og bátum sem starfa undir samningi SÍ og SFS, það er 0,75%. 

Mótframlag launagreiðanda er vegna fiskimanna, ATH ekki smábátasjómanna: 

Styrktar- og sjúkrasjóður er 1% af launum.
Orlofsjóður er 0,25% af launum.
Greiðslumiðlun er 0,24% af launum

Mótframlag launagreiðanda annara en fiskimanna:

Styrktar- og sjúkrasjóður er 1% af launum
Orlofsjóður er 0,25% af launum
Endurmenntunarsjóður er 0,3% af launum

Númer félagssjóðs Sjómannafélags Íslands er F241

Númer annara sjóða félagsins:

Sjúkrasjóður: S241 / Orlofsjóður: O241 / Greiðslumiðlunarsjóður fiskimanna: G241 / Endurmenntunarsjóður: E241

Bankaupplýsingar: 0516-26-005420 kt. 570269-1359
Skilagreinar eru mótteknar í pósti eða á netfang sjomenn@sjomenn.is 

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu