Rafræn atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall.

  • Allir atkvæðisbærir félagsmenn í Sjómannafélagi Íslands fá sent bréf um framvindu samningaviðræðnanna við SFS auk leyniorðs sem nota má við atkvæðagreiðsluna.
  • Félagsmaðurinn fer inn á linkinn í fréttinni hér fyrir neðan.
    Atkvæðagreiðsla um ótímabundið verkfall
  • Þá opnast þessi gluggi sem eftir innskráningu opnar leið að atkvæðaseðli
  • Hægt er að auðkenna sig/skrá sig inn til að greiða atkvæði með því að slá inn kennitöluna sína og síðan leyniorðið sem viðkomandi fékk sent í kynningarbréfinu. Einnig er hægt að auðkenna sig beint með innskráningu á island.is þ.e. með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á farsíma. Þeir sem týna bréfinu með lykilorðinu og þeir sem kært hafa sig inn á kjörskrá geta einungis greitt atkvæði með innskráningu á island.is.
  • Opnast nú Atkvæðaseðill Þar er merkt í Já eða Nei eða Skila auðu og atkvæðinu skilað með því að smella á „Skrá atkvæði“.
  • Félagsmaður sem telur sig eiga atkvæðisrétt en er ekki inni á kjörskrá verður að hafa samband við sitt félag og framvísa þar tilskyldum gögnum t.d. launaseðlum sem kjörstjórn tekur gild og úrskurðar í framhaldinu félagsmanninn inn á kjörskrá. Þá getur hann kosið en nú aðeins með Íslykli eða rafrænum skilríkjum á farsíma eins og fyrr segir.
Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu