Nýtt viðmiðunarverð 2.október 2017

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FFSÍ, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. október 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 10% 
Óslægður þorskur hækkar um 7,0%
Slægð ýsa hækkar um 4,0%

Óslægð ýsa helst óbreytt

Karfi hækkar um 7,0%

Ufsi hækkar um 3,2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. október 2017

Allar verðtöflur

 

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu